Kiss kiss
14.05.2007 13:48:34 / gledin

Eurovison party og fleira.....

Ákvað að henda inn smá bloggi, svo allt verði ekki vitlaust og maður bara rekin, hehe:haha: en já...margt og mikið búið að gerast síðan maður bloggaði síðast:D uh tvö próf búin og bara eitt eftir, enska á morgun:haha: maður rúllar því upp, vonandi.

 En já...um helgina var eurovison og kosningar og hélt ég partý heima uppí kjós, m&p grilluðu ofaní liðið og svona:D stelpurnar ætluðu fyrst bara að koma en svo hringdi óttar um 5 leitið og spurði hvort hann mætti koma og 4 aðrir vinir hans og ég bara jájá why not? hihi:lol: en það var bara ótrúlega gaman, ég er kannski ekki alveg rétta manneskjan til þess að blogga um þetta þar sem að ég var aðeins í aðra tánna og man ekki nema brot af kvöldinu:haha: en ég veit samt að það var mikið drukkið og held að fáir hafi farið með réttu ráði út úr húsinu, hehe:) en minns fór ekki niðurí bæ8| var of full og svo var kærastinn dáinn uppí rúmi, æi þessi elska:D heheh:haha: það var bara fínt, maður var bara sofnaður um eitt leytið og ekki allir einu sinni farnir, en unsa mín sá um þetta allt saman, thanks darling;) svo vöknuðu við um 5 leytið um nóttina, god knows why, fann kannski aðeins ennþá á sér hehe en já..við ákvöðum að fara niður og fá okkur að drekka og sonna og þá var bara ALLT liðið vaknað, mamma og pabbi að horfa á kosningarnar og systir mín vaknaði líka, hehe:) skrítið lið. Svo tók mann tvo tíma að sofna aftur, en það tókst að lokum;) svo var vaknað að hádegi og er ekki hægt að segja að maður hafi verið ferskasta manneskja í heimi, hehe:) gærdagurinn einkenndist svo að þreytu og reyna að rifja upp laugardagskvöldið:D   

Það sem einkenndi helst laugardagskvöldið var ÁFENGI og DRAMA, hehe:haha: 

Ætla svo að setja inn myndir sem Thelma tók af sinni myndavél:)

Síjú Herdís;)

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 14:32:21 / gledin

hæ hó!

váá long time no see! hef ekkert bloggað herna heví lengi og hvað þá herdís! jaa hun er nottla svo heeeeví upptekin;)hehe

Allavega..prófin eru ennþá..eða ég er búin með 2 og á eitt eftir! mjög næs. Vika á milli þeirra allra..buin eila bara að tjilla nema svona 3 dögum fyrir próf..þá er varla hægt að ná i mann! djók..tek þetta ekki alveg svona alvarlega. Svo er lokaballið á miðvikudaginn eftir viku..ætla klárlega að skella mer og fara svo mökkuð í bæinn eftir á. Það verður rall! Versló ballið er líka á þriðjudaginn..spurning um að fara á það líka?;)stelpur?? game??

Júróvisjon á laugardaginn..klárlega mökkuð þá líka! hlakka geðveikt til..er ekki buin að djamma i svona 4-5 vikur..held eg haha. Stelpupartý heima hja herdísi og grill og eitthva sullerí! spurning hvort að við komumst svo i bæinn því að herdís lumar held ég á einhverri svaka bollu?satt hjá mer fokkfeisið þitt?;)haha sorry beibi:*

Rhodos aðeins eftir 3 mánuð! váá ég bara hreinlega get ekki beðið! jesus minn! ég hugsa án efa um þetta á 5 klukkutima fresti!bara tjilla á ströndinni með sssjuklega heita gaura útum allt...og þá er eg að tala um garana sem verða á rhodos..ekki þá sem koma með okkur...hahaha! djók...váá ég er fyndin! allavega að þá er eg bara gjörsamlega að fríka út.

Sillí Vanilli fer bráðum að koma heim frá sverje. Þá verður tekið rall líka;) og slúðrað á rvk pizza company...mm...eg hlakka til...! 

En eg hef bara ekkert meira að segja...myndavelin min er eitthvað biluð svo að það verða ekki myndir i bráð..bara myndir ur afmælinu hennar lilju herna til hliðar á eftir;)

Sí jú;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 19:36:42 / gledin

Afmælisblogg

Já ég veit að ég er ekki að standa mig í blogginu, hef bara haft alveg crazy að gera núna undanfarið;D

en já ég ákvað að skella inn bloggi núna og tileinka því til hennar unnar minnar:D já þessi elska á nefnilega afmæli í dag og er hún hvorki meira né minna en 19 ára gömul:D sem þýðir að það er aðeins eitt ár í að hún fari sjálf löglega ein í ríkið:haha: já en til hamingju aftur dúlla mín vonandi verður kvöldið hjá þér frábært:*:D

 

Hún er á lausu strákar;D hehehehe

Dísan kveður í bili:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 21:09:19 / gledin

Bleeeelli!

 

Jæja soldið síðan maður bloggaði hérna. Herdís klárlega ekki að gera sig hérna. á ég að reka hana? haha djók! klárlega lélegasti djókur frá mér lengi!

aaaallavega...páskafríið komið og ég er að fýýýýla það. Buin að sofa mikið, of mikið segir Sillí Vanilli. Ég ætlaði að vera alveg hreint ferlega dugleg í að læra og hreyfa mig og ég veit bara ekki hvað ég ætlaði ekki að gera í þessu blessaða páskafríi. Hef líklegast haldið að ég hefði allan timann i heiminum, eins og ég held svo oft;)haha

Helgin var bara mjööög leiðinleg hjá mér. hehe. ég var ein heima og váá mér liður alltaf svo ferlega ílla þegar ég er svona ein heima. bara ALEIN í þessu húsi og er alltaf að ímynda mér að það séu einhverjir pólverjar að reyna að komast inn nðest niðri og koma svo inn til mín og gera...guð veit hvað við mig!! neinei..en samt..það nottla búa einhverjir pólverja fjandar herna á móti og ég gæti stundum ælt:!: Föstudagurinn fór sem sagt bara í svefn og svo fór ég i vinnuna á lau.. það var ágætt. Laugardagskvöldið fór í bío og sofa;) haha sunnudagurinn var vinna og skellti mer svo til pabba, sem að sjálfsögðu náði allri athyglinni á KFC by the way...bara: ég vil bara læri og leggi í minn fjölskyldupakka og endurtók þetta allavega svona 10 sinnum og fólkið sem var að vinna bara : því miður það er ekki hægt og pabbi bara : júúú ég ætla að fá það svoleiðis! og eins og alltaf stóð ég við hlið föður mins eins og einhver fokking mongiliti og svona : hahhh eiiinmitt!

uhh á morgun er það djamm held ég...Bríet bauð okkur stelpunum á Hvollarann á ball í njálsbúð. Held bara svei mér þá að það sé málið. Ekkert voðalegt djamm í bænum á morgun...annars hef ég ekki kynnt mér málið betur8) Það var allavega ssssjúklega gaman seinast þegar ég fór bara ein með Bibbu, hef sjaldan skemmt mér jafn vel!;)  Svo að ég held að það sé bara hvollarinn á morgun;)

Svo er það bara fimmtudagurinn...ætla nú að sjá til hvernig ég verð eftir miðvikudaginn en held lika að það sé djamm á föstudaginn;)

og svo er það LAUGARDAGURINN!!! getur einhver bara einhver, sagt mér hvað gerist þá?? :haha: váá mig hlakkar svo til að ég get varla andað sko! eins gott að þið vinkonurnar standið ykkur og gerið eitthvað ógó skemmtilegt með mér! annars...

Bibba var síðan að segja mér að það væri djamm á sunnudaginn??getur það verið?? :D ég er allavega til í það...;)

Svoooo er það Akureyri um þar næstu helgi. Þar sem hún Lára mín ætlar loksins að spila á þessa litlu sætu fiðlu sína og þá erum við stelpurnar að sjá hana spila á fiðlu í frysta skiptið. við erum búnar að plana ýmislegt lára min:* haha ;) Það er nebblea (ef að þið vissuð það ekki) Söngvakeppni framhalsskólanna þá og við erum búnar að fá bústð og allt svo að það verður djeeeemm! núna hljóma ég eins og versti plebbi:lol:

Ég hef voðalega litið að segja meira..

ég segi bara kiss kiss & bless bless;)

p.s munið eftir laugardeginum;)haha

p.s.2 var að setja nyjar myndir inná myspace.com/unsi og myndirnar úr afmælinu hennar Lilju eru bara áááá leiðinni;)

sí jú;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 18:25:05 / gledin

kosningavikan!

Heil&sæl nu! soldið síðan maður bloggaði seinast...

Það er kosningavikan í skólanum núna og bara mjög margir að bjóða sig fram. Maður hefur ekki þurft að eyða neinum pening í mat þessa vikuna því að það er aaaalltaf verið að bjóða eitthva en eg hafði nu samt ekki alveg lyst á neinu í morgun, sem sagt 3 morguninn í röð.. :$ Við stelpurnar ætluðum að bjóða okkur fram í skemmtinefnd því að við erum nu svo feeerlega skemmtilegar;)haha en við hættum við...kannski sem betur fer því að við hefðum örugglega verið eins og einhverjar gúrkur þarna á sviðinu í dag! allar bendandi á hvor aðra og eitthva...

En strákarnir okkar...Davíð, Robbi, Birgir, Óli og Halli eru að bjóða sig fram í listafélagið og gengur þeim bara mjög vel og eiga góða möguleika á að vinna þetta bara :haha: þeir stóðu sig mjög vel uppá sviði i dag og stóðu nu eiginlega flestir með þeim i þessu...;)en það kemur nu allt í ljós á morgun...

Addi er líka að bjóða sig fram og hann á klárlega eftir að rúúúúúústa þessu! skil ekki hvernig hinum dettur í hug að bjóða sig fram einu sinni..maður veit ekkert hvað þær ætla að gera gott fyrir þetta blessaða skólafélag svona fyrir utan það að halda rosalega vel utan um bókhaldið..hahaha:haha:  smá djók...eg var allavega að fýla hugmyndirnar hans Adda míns...blómið mitt! haha ;)

Talandi um það...mér fannst soldið áberandi hja þeim sem eru að bjóða sig fram og voru sem sagt með ræður í dag fyrir framan allan skolann að vera að hrauna yfir hitt framboðið sem er sem sagt á móti þeim. Mer finnst það svo hallærislegt og afhverju að vera að eyða einhverju púðri í það að hrauna yfir þann sem þú ert að keppa við í staðinn fyrir að kynna bara sjálfan þig og reyna að fá flest atkvæðin útá það?? þetta er allavega það sem mer fannst og ég veit að það voru nokkrir sammála mér ;)

Svo er ksoningavakan á morgun á Glaumbar og erum við búnar að plögga því sem plögga þarf í sambandi við það;) Lilja beibi á svo afmæli á laugardaginn svo að það verður neeett partý þar!;)

Klúbburinn hefur greinilega ákveðið að halda aftur bjórkvöld svo að það verður væntanlega skellt ser þangað í kvöld..:D og ég er ssssjuklega ánægð með það..og bara aaallir að mæta;)

uu tæknin er eitthvað að stríða okkur með þessar blessuðu myndir...er að reyna að finna útúr þessu öllu saman;)

Kiss kiss&bless bless

--Unsa--


» 16 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 18:32:45 / gledin

Frussa úr Friðriku:)

Já já það er bara allt að gera sig hérna:lol: get núna sagt að ég sé virkari bloggari en unsa;) en já helgin var bara frábær í alla staði:D á fimmtudaginn unnu strákarnir í bekknum okkar landsbankadeildina í fótbolta í skólanum okkar, unnu bikar og 40000 kall, til hamingju með það:* svo um kvöldið var að sjálfsögðu fagnað þessu einsog við kunnum best:haha: fórum niður í skóla og hittum öll liðin sem voru að keppa, fengum fríaa pizzu og alles:D sparaði okkur stelpurnar peningin, því við ætluðum að hittast heima hjá bríeti og borða saman:D segið svo ekki að við kunnum ekki að spara8) hehe en já....svo var farið heim til bríetar, fengum okkur aðeins í aðra tánna og áður en við vissum af var húsið orðið fullt af fólki, átti upphaflega að vera bara við stelpurnar en strákarnir kíktu líka og þetta var bara mjög gaman:D Kom meira að segja snillingurinn hún Anna Lind með nýtt orð, að frussa úr Friðriku:haha: en það þýðir einmitt að fara á klósettið;)hehe kíktum síðan á síðasta bjórkvöldið á klúbbnum:cry: og er alveg hægt að segja að það hafi verið PAKKAÐ þar, var meira að segja röð þegar við komum og hef ég nú farið á alveg nokkur bjórkvöld og aldrei verið röð:lol: en já það var hvatt síðasta bjórkvöldið með þvílíku djammi:D á föstudeginum var bara tekið því rólega, mætti í skólann að sjálfsögðu fór síðan í bíó um kvöldið með óttari, vini hans og móu kærustu hans, rosa gaman:D laugardaginn fór ég svo á árshátíð kópavogs, sjúklega gaman, góður matur og svo voru paparnir að spila:D  síðan kíkti ég aðeins í partý:D  svo á sunnudeginum var bara haft það nice, fór reyndar í bíó aftur um kvöldið á myndina 300 og get ég alveg mælt með henni:D hún er GEÐVEIK!!     

en já...ætla að fara að læra fyrir sálfræðipróf ákvað að kíkja aðeins við hérna og blogga pínu:) skulum reyna að vera duglegri við þetta og henda einhverjum myndum inná;)

P.S Unsa fór í djammsleik um helgina:lol: ætla nú ekkert að tjá mig meira um það, en ætli það hafi nokkuð verið einhver afi?:haha:

Dísa kveður:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 17:48:41 / gledin

Fyrsta bloggið:D

Já var víst búin að lofa að standa mig í blogginu;) Alex setti þessa gífurlega pressu á mig, hehe

en já fyrir þá sem ekki vita þá heiti ég Herdís og vill helst ekki láta kalla mig Dísa, vildi bara koma því svona framfæri, hehe;) og ég er búin að vera með unni í bekk öll menntaskóla árin mín, hehe sem eru orðin 3 núna8|:D

jájá en að einhverju öðru....það hefur komið mjög greinilega fram í blogginu hennar unnar að ég var að djamma um helgina:lol: fór nú á árshátíð hjá vinnunni á föstudag(vinn á leikskóla) og svo á laugardeginum var tekið svona stelpudjamm á þetta, hehe;) sé nú ekki frammá að þetta djamm eigi eftir að enda bráðlega hjá mér:S:lol: endalaust af afmælum. árshátíð, síðasta bjórkvöldið;) og svo AKUREYRI:D vá! hvað mér er farið að hlakka til í það;)                                                                                                                             en já .....gærdagurinn var svona útkoman af því hvernig ég eyddi helginni, illt í hausnum, flökurt og rosalega þreytt:Shehe missti nú líka röddinni á föstudaginn, tapaði henni á sólon:S er að pæla að droppa þar við á eftir og gá hvort að hún sé ennþá þar hihi:D                                                                                                                     veit ekkert hvað ég á að skrifa meira unnur kom með þetta allt saman í gær:D og alex ef þú villt fá að vita við hvern unnur fór í djammsleik þá bara ræðuru bara við mig, vona bara að ég sé ekki farin að rugla þeim saman, hihi:lol: 

 Vona að þetta hafi ekki verið mjög leiðinlegt blogg:lol:, reyni að vera að dugleg að blogga og þá eitthvað skemmtilegra:D er bara gjörsamlega stífluð núna.                                                                              Ætla líka ýta á unni að setja myndirnar frá helginni sem fyrst inná fotki.com/unsa

 Herdís:D


» 15 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 18:30:56 / gledin

Helgin!

 

Jæja...helgin búin! get ekki sagt annað en að þetta hafi bara verið mjög skemmtileg helgi. Var í fríi og tók djammpakkann á þetta. Djamm báða dagana;)

Heví gaman á föstudaginn...eg erla og ómar enduðum eila bara 3 eftir djammið og skemmtilegar umræður í leigubílnum heim;) "útlitið er ekki allt!!!" hahaha:D

Var alveg ferlega þunn á laugardaginn og var heima bara aaaaallan daginn, lá uppí rúmi og var eitthva að kúrast bara. Very næs.

Í gær var lika ekkert smá gaman. Vorum alveg fullt af fólki heima hja Bríeti og fórum i skemmtilega leikinn úr bústaðnum:D allir alveg ferlega mökkaðir.
Síðan var bara bærinn tekinn á þetta og það var eila bara tómt þegar við komum á prikið um hálf 3 leytið svo að eg og erla fórum bara og fengum okkur að borða og skelltum okkur svo aftur á prikið og það var bara fullt af fólki og maður þekkti alveg sjuklega marga:D

Herdís var klárlega full alla helgina..haha. Var á einhverri árshátið leikskólanna á föstudaginn og var orðin frekar vel í því þegar við sóttum hana. Öll lögin í útvarpinu voru uppáhaldslögin hennar og allt var fyndið:haha:
Það koma myndir frá því i kvöld sennilega.
TAN meistari helgarinnar er klárlega Kiddi.haha fór i 3 ljósatíma i vikunni og er eins og einhver svertingi8)

uuu myndir fara inná www.fotki.com/unsa og koma sennilega bara inn i kvöld;)

eg er þá farin..;)

p.s. Herdís fór lika i djammsleik ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 20:15:54 / gledin

haaaaalló!

Váá ég trúi ekki að ég sé aftur farin að blogga hérna!? Alex, Gunni Freyr, Herdís og fullt af fólki hefur náð að sannfæra mig um að byrja aftur með Gleðina;)

Allavega ég er bara ennþá í skólanum og allt það..bara allt rosa gott að frétta;)

Búin að standa mig ágætlega í djamminu undanfarið..ég bara get ekki sleppt því að djamma með henni Bibbu minni &co;)

 En jæja...Herdís mín ætlar að joina með mér hérna í gleðina. Nenni ekki að vera ein eins og ég var;) haha

Allar myndir og allt fara bara inná www.fotki.com/unsa

Ætlaði bara aðeins að segja hæ og svona...;)

 sí jú;) kv.Unsa


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 14:42:53 / gledin

Laaaaadies!!

Það er komin ný síða fólk:D

www.blog.central.is/laadies

Allir að tjekka á nýju síðunni og þá er Gledin svona eeeeila dottin út;)samt ekki alveg...hehe

blessó;)

kv.Unsa laadie;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 23:32:00 / gledin

bleeller! hahaha

jæja þá er bara kominn þriðjudagur og prófin eftir viku:!: sjitt..á bókað eftir að skíta á mig í ensku..fjandinn:!: en þetta kemur alveg...

Svo þetta veður...aaalveg sko. Er ekki að meika það að vera að labba í skólann og vera næstum því 7 sinnum búin að detta8| Og svo er það líka svo geðveikt vandræðalegt þegar maður er einn og dettur. haha bara eitthva úúpps :S En nóg með það..thats Iceland:!::haha:

í gær átti karen sæta afmæli, til hamingju aftur með gærdaginn beibi:* ég og erla fórum til hennar um hálf 9 leytið og þar voru Íris Thelma, Jóhanna, Tinna og Elsa Petra og auðvitað Karen;) það var bara kjaftað og svona. síðan var Laguna Beach sett á (það er einhver þáttur) og vááááá eigum við að ræða leiðinlegan þátt, ekkert á við Little Brittain eða Só you think you can dance;) þessi þáttur er bara um einhverjar gellur og einhverja gaura sem eru bara að missa sig í einhverju partýstandi og allir með öllum og eitthva kjaaaaftæði:!: og gellurnar eru bara eitthva I mean like u know like bara fokkting like í öðru hverju orði sko!hef aldrei horft á jafn leiðinlegan og tilgangslausan þátt..hehe. Allvega eftir þennan óhugnalega leiðinlega þátt að þá var mamma hennar Karenar búin að búa til mat handa okkur sem var djúpsteikur camembert(og fyrir þá sem ekki hafa smakkað soleis að þá eruð þið að missa af miklu, þetta er geðveikt gott!!) og sulta, vínber og brauð með og svo var hún búin að búa til svona heita sósu fyrir snakkið sem var deliiissssjöss;) mjög gott. Við ákváðum síðan að fara á rúntinn og vorum við á rúntinum alveg til hálf 3 held ég, bara i tjillinu. Eftir það fórum ég, karen, erla og íris til karenar og vorum þar til hálf 4 og þá fórum ég og erla heim;) mjöööög skemmtilegt kvöld stelpur mínar:haha: Lets do that again;)og aftur takk fyrir mig Karen:*

Í dag svaf ég til 12 og ætlaði mín aldeilis að byrja daginn vel og fékk mer dýrindis special og skellti mér svo í skólann og datt næstum 7 sinnum á leiðinni:evil: heheh Og nuna bara rétt í þessu var ég að koma heim. var á staffafundi og fullt af nýjum stelpum að byrja að vinna og svona:Dog fór svo á rúntinn  með erlu og kareni..:D gúddsjitt og þar datt okkur í hug að skella okkur bara til Miami í c.a einn mánuð næsta sumar og bara tjilla og vera að vinna og það er bara fínt vegna þess að þá verð eg buin að vera að worka át í ræktinni eins og það se enginn morgundagur og verð eins og bomba B O B A hahahahah:D ég er allavega feitan til í þetta og það verður bara spara spara spara…hver er game???:D síðan er nottla útskirftarferðin og váááá eg get bara ekki beðið..úff:D

En svo var ég að muna um daginn hvað var óhugnalega gaman á Færeyskum dögum í sumar:D það var ekkert smá gaman byssurnar, músurnar, gledin að sjálfsögðu ásamt erlu frænku og 101 chicks;) haha þetta var mjög skemmtileg ferð:haha:

þetta var virkilega skemmtilegt..:Dán efa skemmtun ferðarinn haha

Hey já svo er svona næstum ný síða komin og er orðið á götunni núna að ég og erla séum að fara í þessa síðu en þetta er

Blog.central.is/laadies ß tjékk it out!!

Gúddsjitt síða og heeeey það komu 96 á síðuna mina um daginn!!!talandi um meeet eða? Ég fékk næstum áfall sko:D en samt alveg sjúklega ánægð:D

Myndir eru bara áááááááá leiðinni…tekur smá tíma herna;) haha

Held að þetta sé komið núna…helgin? Veit ekki sko:D allavega ekkert djamm..prófin að byrja í næstu viku og svona;)

ég er farin þá bara..see ya beibis;)

ég og erla i virkilega fóðum gír á lokaballinu í fyrra;)

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 21:15:46 / gledin

hey man

bleee...váá snjór út um allt og eg hata þennan snjó! geriri það að verkum að eg þarf að fara í ullasokka á morgnanna..þeir eru reyndar alveg fine sko;) En svo er eg komin með svefnsýki...eg bara sef og sef og sef meira:!: ég gæti endalaust sofið...ætlaði að eins að leggja mig i dag en nei min svaf í tæpa 4 tíma :!:8| jesus..og eg að fara i enskupróf á morgun sem er bóókuð skita:(

En nóg með það..ég er komin með æði fyrir So you think you can dance og Little Brittain. ég bara eeelska þessa þætti..:haha: gaurarnir í so you....eru svo heitir að eg á bara bágt með mig og þó að þeir seu ekkert eitthva svaka sætir að þá eru þeir með svo góðan persónuleika og það er nu það sem Unsan leitar eftir ;) hehe

Herna eru nokkrar myndir úr þáttunum..hahahah:D

Little Bittain...

bwhahaha barnapían

hahahha ANdy og Lou sjitt þetta er svo fyndið!

So you think you can dance...

Benji og Travis og stelpurnar þeirra...

Svo eru hipp hopp dansarnir alltaf svo geðveikir..sjitt!

ég mæli sko með því að þið horfið á þessa þætti...:D

En eg er farin..ætlaði bara að skjóta þessu inn;)

p.s. ég þoli ekki druslur! hvað er málið?? og líka busa..serstaklega strákana...com on þeir eru ennþá í counter bla bla eitthva í tölvunum í skolanum og haga ser eins og fokkfeis! og svo eru þeir svo sveittir og viðbjóðsleg lykt af þeim eða þá að það er svo vond lykt af þeim að þeir setja svona 7 tonn af einhverjum ódýrum rakspíra úr Bónus á sig:!: viiiiðbjóður..og fara svo út í sjoppu og kaupa sér eina sveitta beikonsamloku(sem er nu ekki góð fyrir húðina og rassinn;)) og 7 dósina sína af kók ??

-Sorry ef að það er einhver busi að lesa þetta..bwahhahah :P

see ya

                                                                                              -Unsa;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 11:57:26 / gledin

bleee

What up?:D eg er bara hress...var að vakna..sweet að vera ekki að vinna í dag...er reyndar að vinna á morgun en fokk that;) Skólinn er að gera útaf við mig þessa dagana..það er fokking brjálað að gera:!: allir kennararnir bara hey best að setja eitt stórt próf á ykkur eða verkefni se gildir 20% nuna :P hvað er málið? afhverju setja þeir ekki stóru verkefnin á í byrjun skolans svo að þau seu bara buin??? dööööö:!: neinei allavega að þá er þetta seinasta djamm helgin min...því að það eru að koma PRÓF:!::!::!::klikk: fer reyndar bara i 4 sem betur fer...svo eru sumir að fara i 7 eða 8 próf? skil ekki alveg þetta kerfi i MS:!:

En í gær að þá var ræðikeppni MS vs. FSU ..sjitt þeir skitu svo feitan á sig maður..vááá:D þeir eru aaaallveg sko...þá er eg að tala um FSU...haha og svo voru svona 15 manns sem komu að styðja þá en svona 50 manns hja okkur:D svo voru þeir i ræðuliðinu alltaf að skjóta eitthva á þá...alltaf eitthva já þetta er eins og Honda með engann spoiler og þetta er verra en rúnturinn á Selfossi:lol: hahaha eitthvað álíka...en svo unnum við með 600 og eitthva stigum;) Kennarinn þarna var alveg að gera sig...sagði að liðstjórinn okkar hefði verið með ömurlega ræðu...bwhahahha liðstjórar eru ekki með ræður! fokkfeis!:klikk: hahah það var ekkert smá fyndið...Síðan ætlaði eg að segja stelpunum frá þessu og segi eitthva hey já kennarinn (frekar hátt) og þá stendur hann beint fyrir aftan mig8| hahah eg fékk síðan Killer lúkk þegar eg var að labba út...mer var alveg sama. eg  sendi honum bara mitt killer lúkk á móti;) u know that one;)

En svo eftir að við komum frá Selfossi...Kristján, Herdís, ég og Sölvi að þá ákváðum við að skella okkur í bíó á Borat:D og sjitt hvað þetta er fyndin mynd..eg hafði það nu samt af að sofna i bíó:lol: ég geri það alltaf...það bregst ekki..(sjitt nuna langar engum að bjóða mer í bíó:$ :haha: ) hahaha og atriðið með feita gaurnum að rúnka ser yfir Pamelu og svo fara þeir eitthva að slást...OJ bara...eg ældi næstum því:S Gaurinn er svo feitur að hann ser ekki einu sinni tittlinginn á ser????8|:haha: bwhahahah viðbjóðslegt...Síðan eftir bíóið var bara haldið heim og að sofa;)

En i kvöld er eg að fara á jólahlaðborð með Body Shop (yndislegu vinnunni minni) og er það haldið á Óðinsvé eða eitthva? Siggi Hall ætlar að sjá til þess að Unsan fari ekki svöng á djammið;) Svo er það bara djamm djamm og aftur djamm;) nýta seinasta djammið vel:D

Myndirnar eru á leiðinni fólk! eg fæ allavega einu sinni á dag i skolanum "Unnur hvenar koma myndirnar??" ég "Þær eeeeeeru á leiðinni" en fólk, ekki örvænta..myndirnar eru á leiðinni;) hehe gúddsjitt myndir myndi eg segja..:haha:

Herna koma nokkur sýnishorn;)

ég og lára beibi;)

Bibba mín...i þessum lika flotta sundbol;) haha

Dísa beibi;)

Robbi og dabbi..;)

ég er farin;) cheers beibis...

-Unsa Bond


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 18:40:28 / gledin

1985!

ja við erum komin aftur til ársins ´85 sem var nottla ofur svalt ár:D en allavega að þá var sem sagt 85 vikan nuna i skolanum eins og kom fram i seinustu færslu;) og allur skolinn er geðveikt mikið skreyttur  og tímavélin er nottla á sínum stað, ekkert smá flott;) og svo er buið að vera fullt i gangi og bara geðveikt gaman að vera i skolanum nuna og ekki er það nu verra að örugglega annar hver strákur er i níðþröngum skræpóttum leggings og eg geeeet bara ekki sagt annað en að eg fýli það:lol: haha

Á mánudeginum var keilan skemmtilega og skelltum við okkur auðvitað...og var eg með stórar yfirlýsingar um það að eg ætlaði sko að rústa þeim i keilu s.s láru, erlu, vikky, herdísi og stjána eeen það fór ekki alveg svo en eg náði nu 89 stigum??? það er nu ekki svo slæmt :$ haha en herdís vann þetta og held eg því sterklega fram að hun hafi komið á hverjum einasta degi i seinustu viku og æft sig...maður er bara hreinlega ekki svona góður i keilu:!::!:???;) eina fellan sem eg náði var þegar lára átti að gera en hun var ekki á staðnum svo að eg gerði bara og náði þessari fallegu fellu en þá kastaði viktoría sinni kúlu strax á eftir svo að þetta var ekki tekið með hahhhaha svo að eina fellan sem eg náði var þegar lára átti að gera oooog hun var ekki gild:!: hahaha

Svo á þriðjudeginum var bílabío og þar var myndin Löggulíf sem sá um að skemmta okkur og hun var ekkert smá fyndin..langt síðan eg hef seð hana! En eg, dísa og lára plöntuðum okkur á planinu og horfðum á myndina. Á miðvikudeginum var hæfileikakeppnin en við vorum svo stutt á henni að það er ekki mikið að segja frá..

Eeeeeen svo á fimmtudeginum var sjálft ´85 ballið og váá eigum við að ræða það hvað var gaman?? Hef ekki skemmt mer svona vel lengi en eg get ekki sagt að eg muni eitthva rosalega mikið frá ballinu..váá það er bara ekki mitt að fara á ball á Broadway?? Man aldrei neitt!;) hehe Svo var eg bara komin heim um 2 leytið og fór að sofa…gott að komast undir sæng;)

Á föstudeginum var eg svo þunn að eg bara gat varla labbað sko..hef ekki verið svona þunn síðan eg veit ekki hvenar..reyndar var það kannski afþví að eg fór og fekk mer nammi..Andri Fannar skutlaði mer einmitt úti sjoppu, takk fyrir farið beibi;) hann ætlaði að draga mig í skolann í einhverjum ógeðslegum fötum:D hahaha en svo fór eg bara heim að horfa á Tv. Svo um kvöldið að þá fór eg í matarboð útá nes til nýríka fólksins:D yngsta systir hennar mömmu…og svo bara heim um 10 og að sofa!

Í dag fór eg að vinna og það var bara fint. Ekkert svo mikið að gera samt…

Spurning með kvöldið…spóla eða djamm??? Aldrei að vita nema að maður finni ser einhvern góðan til þess að kúra með;)

Já seinasta helgi var skemmtileg að vanda...eg var að vinna bara og pabbi kom með pening til min svo að eg gæti keypt mer fallegu skóna mina:haha: og svo á lau kvöldinu komu stelpurnar til min og vorum við bara niðrí stofu og spjölluðum við um hitt og þetta og síðan skelltum við okkur niður á hverfis því að þar var eitthva partý og fullt af fólki þar..hef held eg aldrei seð svona marga sæta gaura;) hehe sem var mjööög jákvætt;) haha lára fekk ser kaffi með Helga dyraverði..og svo fór hun "heim" kl.2 því að hun var svo ölvuð;) haha en eg og erla djömmuðum til 4 held eg og svo var bara farið heim að sofa..fengum far hja Kára beibi, takk fyrir farið:* eg væri örugglega ennþá niðrí bæ að redda mer fari heim:D hahahah svo á sun var bara aftur farið að vinna og bara þynnkan tekin fyrir um kvöldið. Svo um kvöldið var skellt ser i bio með liðinu og fórum við í 3 bíó til þess að sjá Borat en alls staðar uppselt hehe frekar fyndið sko:D

Myndirnar frá vikunni og seinustu helgi og svo ballinu eru á leiðinni..bara róa sig fólk;) hehe myndasíðan min er eitthvað biluð svo að eg þarf að finna mer aðra!:D

 

Held að þetta se bara komið hjá mer nuna…!

 

Takk fyrir mig;)

Unsí!



 



 


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 18:30:18 / gledin

'85 vikan!!!

Núna stendur yfir hin óótrulega skemmtilega ´85 vika í MS :D það er keila i kvöld og það eiga allir að mæta i sínu fínasta pússi;) bílabíó á morgun og hæfileikakeppni á mið og svo kemur aðal dæmið

85 ballið !!!!!!

eg get vaaarla beðið..:D

en eg ætlaði bara aðeins að skjóta herna inn..:D koma myndir og blogg á morgun frá helginni og fleira;)

cheers Unsa;)

hversu kúl er þetta???:haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9